HVAÐ ER MÚÚ
Miðstöð útivistar og útináms (MÚÚ) er miðlæg þekkingarstöð á sviði útivistar og útináms fyrir skóla- og frístundarstarf í Reykjavík.
Hlutverk Múú er að veita stuðning og ráðgjöf við eflingu útivistar og útináms í nærumhverfi barna og unglinga í hverfum borgarinnar.
- Að efla og styrkja þekkingu starfsfólks hjá SFS í útinámi, útivist og sjálfbærni.
- Að ýta undir og styðja við útinám og útivist í degi barnsins
- Að gera framkvæmd útináms og útivistar auðveldari
- Að halda utan um miðlæg verkefni SFS sem tengjast útivist og útinámi
MÚÚ tileinkar krafta sína öllum skólum og frístundastöðvum Reykjavíkurborgar; grunnskólum, leikskólum, frístundarheimilum og félagsmiðstöðvum og býður upp á valkosti fyrir alla aldurshópa til að stunda fjölbreytta útivist og frístundaiðkun,árið umkring.
MARKMIÐ MÚÚ
- Ýta undir almenna útiveru íbúa Reykjavíkur.
- Tryggja útiveru barna og unglinga og efla gæði útivistar og útináms í frístunda- og skólastarfi.
- Auðga námsreynslu barna og unglinga og gefa þeim tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi sitt.
- Auka áhuga og þekkingu starfsfólks skóla- og frístundasviðs um útivist og útinám
- Styðja við og hjálpa starfsfólki frístunda- og skólastarfs að bæta útivist og útinám barna og ungmenna í borginni.
- Gera útinám og útivist aðgengilegt og eftirsóknarvert tækifæri í verkfæraboxi kennara og leiðbeinanda
ÞJÓNUSTA MÚÚ
- Fræðsla starfsfólks: Fræðsla fyrir starfsfólk skóla og frístundamiðstöðva í formi námskeiða, fyrirlestra og smiðja auksamstarfs við Háskóla Íslands.
- Móttaka skólahópa í skipulagða dagskrá.
- Aðgengi útivistarsvæða: Skipulagt aðgengi að útivistarsvæðum með verkefnum fyrir hópa.
- Útikennslustofa: Aðgangur að útikennslustofu í Gufunesbæ.
- Heimsóknir grunnskólabarna: Umsjón með skipulögðum heimsóknum grunnskólanema í Perluna á skólatíma.
- Verkefnakistur: safn áhugaverðra útiverkefna fyrir skóla og frístundastarf.
- Efnisveita: Aðgengi að náttúrulegum efnum til notkunar í starfi.
Starfsmenn MÚÚ
Hjá Miðstöð útivistar og útináms starfar öflugt teymi reynslumikils fólks sem brennur af áhuga fyrir útivist og útinámi.

Hafsteinn Grétarsson
Deildarstjóri
MÚÚ
Ævar Aðalsteinsson
Verkefnastjóri
MÚÚ
Nils Óskar Nilsson
Verkefnastjóri
MÚÚ
Stína Bang
Verkefnastjóri
MÚÚ
Ólafur S. Steinarsson
Leiðbeinandi og þúsundþjalasmiður
MÚÚ
Heimir Stefánsson
Leiðbeinandi og þúsundþjalasmiður
MÚÚ
Rúnar S. Skaftason
Leiðbeinandi og þúsundþjalasmiður
MÚÚ