Útinám og útikennsla

Útikennsla er heildstæð og skilvirk kennsluaðferð þar sem nám er fært út fyrir veggi skólans. Aðferðin gerir nemendum kleift að takast á við námsefni á fjölbreyttan,skemmtilegan og óhefðbundinn hátt.  Útikennsluna má samþætta við allar námsgreinar skólans sem  eykur fjölbreytni í kennslu, dýpkar skilning nemenda á námsefni sínu og brýtur upp hefðbundið kennsluform.

Nemendur æfast í að fara út fyrir hefðbundinn hugsunarramma og takast á við áþreyfanleg verkefni undir berum himni. Útikennsla gerir nemendum kleift að upplifa náttúru og umhverfi, beita öllum skilningarvitum, fá aukna hreyfingu og takast á við raunverulegar aðstæður. Þar að auki styrkir útikennsla félagsleg tengls og umhverfisvitund.

Við hjá MÚÚ vitum vel að útikennsla krefst fullvaxta hugmyndaflugs, góðs undirbúnings og tímafreks skipulags. Við bjóðum því uppá eftirfarandi þjónustu og verkefni til að liðka til við framkvæmd og undirbúning:

Útinám

ÚTI ER ÆVINTÝRI

Úti er ævintýri er útinámsdagskrá  fyrir skólahópa í Gufunesbæ.  Starfsmenn MÚÚ sjá um móttöku, undirbúning og framkvæmd. Nánari upplýsingar og skráning hér.

ÚT Í BLÁINN - útivistarsvæði

Út í bláinn snýst um að auka aðgengi leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva að útivistarsvæðum í Reykjavík til að nota markvisst í starfi með börnum og unglingum. Það felst meðal annars í því að hafa aðgang að skjóli, salernisaðstöðu og hugmyndum að verkefnum.

LUNDURINN

Lundurinn er útikennslustofa í Gufunesbæ þar sem hópar hafa aðgang að upphituðu tjaldi, eldstæði og ýmsum búnaði en sjá að öðru leyti um sig sjálfir. Nánari upplýsingar og skráning hér.

SKÍÐATÍMI 2. bekkur

Skíðað á skólatíma er klukkutíma skíðaupplifun fyrir nemendur 2. bekkjar þar sem nemendur fá að spreyta sig á skíðum undir handleiðslu starfsmanna MÚÚ og skíðakennara. Nánari upplýsingar og skráning hér.

PERLAN MUSEUM 6. og 9. bekkur

Perlan býður skólahópum 6. og 9. bekkjar  í heimsókn á sýningarnar Undur íslenskrar náttúru og Vatnið í náttúru Íslands en þessar tvær sýningar tengjast vel námsefni nemenda á þessum tveimur skólastigum.

HÚSDÝRAGARÐURINN 3.bekkur

Fjölskyldu og Húsdýragarðurinn býður nemendum 3. bekkjar í heimsókn í húsdýragarðinn. Nemendur fá að upplifa og fræðast um íslensku húsdýrin, nytjar og lifnarhætti.