411-5615 muu@reykjavik.is

Perlan og Náttúruminjasafn Íslands

Námsheimsóknir fyrir 6. bekk á sýningar Náttúruminjasafns Íslands og Perlunnar. Heimsóknirnar standa skólum innan skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur til boða. 

Skráning hér fyrir neðan

Perlan og Náttúruminjasafn Íslands

Miðstöð útivistar og útináms heldur utan um námsheimsóknir grunnskólanema í Perluna fyrir hönd Reykjavíkurborgar og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. 

Heimsóknin stendur nemendum 6. bekkja í Reykjavík til boða vorönn 2026 og er án endurgjalds.

Markmið heimsóknarinnar er að gefa nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á samspili manns og náttúru með góðri upplifun og fræðslu á gagnvirkum náttúrusýningum Perlunnar og Náttúruminjasafns Íslands.

Námsheimsóknir vorönn 2026

Heimsóknartímabil: 12. janúar til 21. maí 2026.

Hámarksfjöldi nemenda í hóp: 30 nemendur. 

Lágmarksfjöldi kennara með hóp: 2 kennarar auk viðeigandi stuðnings með nemendum.

Safnkennari Náttúruminjasafns Íslands  tekur á móti hópi við komu í Perluna og leiðir fræðslu og verkefni á sýningu um Vatnið í náttúru Íslands. Kennarar fá, að því loknu, verkefnablöð frá Perlunni og leiða hópa sína sjálfir í gegnum  náttúrusýningar Perlunnar.

Bókanir 6. bekkur 2026

Boðið er upp á heimsóknir í Perluna vorönn 2026 á þriðjudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 09:30-11:00.

Athugið að: 

  • Kennarar bera alfarið ábyrgð á nemendahópi sínum í Perlunni.
  • Skólahópum, líkt og öllum hópum, ber að sýna kurteisi og tillitssemi í umgengni við aðra gesti Perlunnar svo upplifun allra sýningargesta verði góð.
  • Ekki er hægt að leyfa nemendum að snæða nesti í Perlunni á heimsóknartíma.

Kennaraheimsókn

Miðvikudaginn 7. janúar  2026  og föstudaginn 9. janúar 2026  er kennurum 6. bekkja boðið að koma í undirbúningsheimsókn á sýningar Perlunnar og Náttúruminjasafns Íslands.

Tekið verður á móti skráðum kennurum í andyri Perlunnar kl.15:00. Safnakennarar leiða hópinn í gegnum allar sýningar og útskýra dagskrá.

Heimsóknin er hugsuð sem undirbúningur fyrir kennara 6. bekkja og er þeim að kostnaðarlausu.