Út með oss
Fræðsla fyrir starfsfólk SFSMiðstöð útivistar og útináms býður starfsfólki skóla og frístundastöðva Reykjavíkurborgar upp á kynningar og fræðslu um útinám og útivist undir formerkjum Út með oss. Fræðslan er í formi örnámskeiða, fyrirlestra, kynninga, heimsókna og smiðja og er ætluð þeim sem vilja auka við þekkingu sína um útivist og útinám.
Markmið fræðslunnar er að hvetja kennara og leiðbeinendur til að nýta sér útikennslu og útivist í starfi með börnum og ungmennum. Þjónustan eru fullkomin viðbót við starfsdaga starfsstaða eða sem kynning og/eða endurmenntun á útinámi. Dag- og tímasetningar námskeiða ráðast af samtali starfsstaða og MÚÚ.
Fyrir frekari upplýsingar og bókanir hafið samband við muu@reykjavik.is







