Miðstöð Útivistar og Útináms
MÚÚ er miðlæg þekkingarstöð á sviði útivistar og útináms sem þjónustar skóla- og frístundastarf í Reykjavík.
Miðstöð útivistar og útináms (MÚÚ) er miðlæg þekkingarstöð á sviði útivistar og útináms sem þjónustar skóla- og frístundastarf í Reykjavík.
HLUTVERK
- Að efla og styrkja þekkingu starfsfólks hjá SFS í útinámi og útivist.
- Að ýta undir og styðja við útinám og útivist í degi barnsins
- Að gera framkvæmd útináms og útivistar auðveldari
- Að halda utan um miðlæg verkefni SFS sem tengjast útivist og útinámi

MARKMIÐ
- Að starfsfólk hafi áhuga og þekkingu til að nýta útivist og útinám í skóla- og frístundastarfi.
- Að útinám og útivist sé eftirsóknarvert verkfæri í tækjaboxi kennara og leiðbeinanda.
- Að námsreynsla barna og unglinga sé fjölbreytt og auðug af tengingu við útinám og útivist.
- Að aðstæður til útivistar og útináms séu góðar í skóla- og frístundastarfi.
STARFSMENN MÚÚ
Hjá Miðstöð útivistar og útináms starfar öflugt teymi reynslumikils fólks sem brennur af áhuga fyrir útivist og útinámi.

Hafsteinn Hrafn Grétarsson
Deildarstjóri

Ævar Aðalsteinsson
Verkefnastjóri

Níls Óskar Nílsson
Verkefnastjóri

Stína Bang
Verkefnastjóri

Heimir Stefánsson
Leiðbeinandi og þúsundþjalasmiður