Miðstöð útivistar og útináms (MÚÚ) er miðlæg þekkingarstöð á sviði útivistar og útináms fyrir skóla- og frístundastarf í Reykjavík (SFS).Miðstöðin hefur einnig umsjón með frístundagarðinum við Gufunesbæ í samstarfi við frístundamiðstöðina Brúnna og rekur skíðabrekkurnar í borginni fyrir hönd ÍTR.
Hlutverk MÚÚ
- Að efla og styrkja þekkingu starfsfólks hjá SFS í útinámi og útivist.
- Að ýta undir og styðja við útinám og útivist í degi barnsins
- Að gera framkvæmd útináms og útivistar auðveldari
- Að halda utan um miðlæg verkefni SFS sem tengjast útivist og útinámi
MÚÚ tileinkar krafta sína öllum skólum og frístundastöðvum Reykjavíkurborgar; grunnskólum, leikskólum, frístundarheimilum og félagsmiðstöðvum.
Helsta hlutverk MÚÚ er að veita stuðning og ráðgjöf við eflingu útivistar og útináms í nærumhverfi barna og unglinga í hverfum borgarinnar.
Markmið MÚÚ
- Að starfsfólk hafi áhuga og þekkingu til að nýta útivist og útinám í skóla- og frístundastarfi.
- Að útinám og útivist sé eftirsóknarvert verkfæri í tækjaboxi kennara og leiðbeinanda.
- Að námsreynsla barna og unglinga sé fjölbreytt og auðug af tengingu við útinám og útivist.
- Að aðstæður til útivistar og útináms séu góðar í skóla- og frístundastarfi.